Gefur njósnasögu byr undir vængi

Í kvöld sýnir Hringbraut viðtal við Kristin Hrafnsson fréttamann og talsmann Wikileaks. Kristinn mun í þættinum ræða hvernig Bandaríkin hafa látið njósna um hann.

Hringbraut birti frétt í gær um fyrirhugað viðtal og brot af því sem þar mun koma fram. Össur Skarphéðinsson, fv. utanríkisráðherra, deilir fréttinni og nefnir dæmi frá utanríkisráðherratíð sinni þar sem samskipti hans við Kristin voru ítrekað trufluð.

\"Ég hef ekki hugmynd um hvort það er njósnað um Kristinn Hrafnsson,\" segir fyrrum utanríkisráðherra. Hann bætir við: \"Ég minnist þess hins vegar að eitt sinn hringdi hann eftir upplýsingum í þáverandi utanríkisráðherra, og voru báðir staddir í New York. Einhvers staðar hafa líklega öll rauð ljós farið að blikka þegar jafn grunsamlegir menn spjölluðu saman. Þó aðeins væru þrjú stræti á millum okkar rofnaði símtalið margsinnis. Það endaði með því að ég bauð honum að skoppa yfir og þar lukum við spjallinu,\" skrifar Össur með deilingu á frétt Hringbrautar. Hann bætir svo við í lokin: \"Líklega er farsælt að vera hæfilega nojaður og gera stundum ráð fyrir hinu versta.\"

Viðtalið við Kristin Hrafnsson verður sýnt í þætti Sigmundar Ernis, Mannamáli.