Össur ekki spámannlega vaxinn

Vandamál Össurar Skarphéðinssonar í pólitíkinni eru að hann er ekki spámannlega vaxinn, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í þættinum Þjóðbraut hjá Páli Magnússyni á fimmtudagskvöld.

Tilefni þessara orða hans eru þau orð Össurar að eigendur hrægammasjóðanna væru ofsaglaðir yfir losun haftanna því þeir teldu sig sleppa vel frá Íslandi með sitt höfuðgóss. Sigmundur Davíð gerði grín að Össuri af þessu tilefni; taldi hann enda þekkja mjög vel til hrægammanna, þar væru heimatökin vísast hæg - og vísaði þar væntanlega til þess að stórvinur Össurar, Einar Karl Haraldsson almannatengill er sagður hafa verið á launum hjá sjóðunum við að óhreinka ímynd ráðamanna.

En Sigmundur Davíð var ekki hættur, sagði Össur hafa spáð því að sér myndi verða steypt af stóli sem formanni Framsóknarflokksins og hann hefði eytt miklu púðri í að spá fyrir um framtíð sína á ráðherastóli, en gleymt í sömu andrá að horfa inn á við; valdaránið hefði nefnilega orðið innan hans eigin flokks, eða altént svo alvarleg tilraun til þess að aðeins einu atkvæði munaði.