Össur efstur

Össur Skarphéðinsson þingmaður varð efstur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Í öðru sæti er Sigríður Ingibjörg Ingadóttir þingmaður. Nýliðinn  Eva H. Baldursdóttir lögfræðingur hlaut þriðja sætið. Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, lenti í fjórða sæti. Efstu sætin í Reykjavík suður og norður skipa þessir fjórmenningar. Valgerður Bjarnadóttir þingmaður flokksins stefndi á fyrsta eða annað sæti, en varð í fimmta sæti.