Kári Stefánsson segir að heilbrigðiskerfi þjóðarinnar hangi á bláþræði. Hvorki séu Íslendingar að fá bestu lyf né bestu þjónustu. Þetta kom fram í Kastljósi í gærkvöld. Kári og Pawel Bartoszek pistlahöfundur voru gestir þáttarins.
Kári nefndi sem dæmi að það væri ósmeklegt að það fyrsta sem menn þyrftu að gera á slysasvarðstofu væri að draga upp kreditkort.
Fjölmargar fréttir hafa verið sagðar af sjúklingum sem híma í geymslum og frammi á göngum spítala. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði síðast í svari við fyrirspurn á þingi í gær að búið væri að stórefla þjónustuna milli ára. Kári telur þó hvergi nærri að gert, enda hefur hann höfðað til þjóðarátaks.
Nokkuð var í þættinum þrefað um prósentutölur og verga þjóðarframleiðslu en Sigmundur Davíð hefur gert athugasemd við 11% ákall Kára. Kári sagði prósentur engin heilög rök í málinu heldur væri hann að benda á markmið. Hann sagði ótrúlegt að jafnvel í góðæri hefði heilbrigðismálum ekki verið sinnt sem skyldi. Að auki hefði fyrsta félagshyggusinnaða ríkisstjórn Íslands, vinstri stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, skorið meira niður í heilbrigðiskerfinu en í utanríkisþjónustunni. Pawel varði aftur á móti þá ákvörðun og taldi að niðurskurður í félagsmálum hefði orðið þjóðinni enn dýrari á tímum blankheita í samfélaginu.
Kári heldur fram að mjög mikið fé vanti inn í kerfið til að hægt sé að reka það með myndarbrag. Ríkið hafi vanrækt skyldur sínar í aldarfjórðung. Pawel gerði athugasemd við orð hans í þættinum og bar saman við nágrannalönd.
Pawel nefndi í umræðu um söfnunarátak Kára að sum ríki hefðu nánast orðið gjaldþrota þegar þjóðaratkvæðagreiðslur hefðu kallað á skyndilegan kostnaðarauka fyrir þau.