Óskynsamlega lofað

Þorsteinn Víglundsson þingmaður Viðreisnar og ráðherra spyr hvernig Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að fjármagna kosningaloforð sín því augljóst sé að ekki er svigrúm fyrir skattalækkanir í nýsamþykktri ríkisfjármálaáætlun Sjálfstæðisflokkksins. Nánar á www.visir.is

Þorsteinn segir að Sjálfstæðisflokkurinn eigi að útskýra hvar flokkurinn ætlar að skera niður framlög úr ríkissjóði til þess að fjármagna kosningaloforðin.

Þorsteinn bendir einfaldlega á að útgjaldaloforð Sjálfstæðisflokksins - samhliða fyrirheitum um skattalækkanir - stangist á við sjálfbærnismarkmið laga um opinber fjármál.

Það fer minna fyrir ábyrgðinni í Valhöll nú en fyrir nokkrum vikum síðan sagði Þorsteinn Víglundsson.

[email protected]