Snúningur hefur orðið á heitasta máli dagsins þar sem Ríkisútvarpið hefur eftir Kristínu Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar, að albanska fjölskyldan, sem flutt var úr landi í nótt, hafi dregið kæru sína til kærunefndar útlendingamála til baka og óskað eftir því að verða flutt úr landi.
Mikil reiði hefur gripið um sig vegna flutnings 27 útlendinga með flugvél þar sem 20 lögreglumenn fóru með þá til Keflavíkur í nótt. Tveir ungir drengir voru í hópnum, bráðir langveikir. Fólkið hafði sótt um hæli hér af mannúðarástæðum en verið hafnað af Útlendingastofnun.
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu Rúv úr innanríkisráðuneytinu er Ólöf Nordal ráðherra stödd erlendis og er væntanleg til landsins síðdegis. Óvíst er hvort hún tjái sig um mál albönsku fjölskyldunnar, sem hefur töluvert verið til umfjöllunar í dag.
Eins og Hringbraut hefur fjallað um er hafin undirskriftarsöfnun á netinu, þar sem þess er krafist að Ólöf beiti sér fyrir því að fjölskyldurnar sem sendar voru úr landi í nótt verði sóttar aftur, annars er þess krafist að hún segi af sér embætti.