Athafnamapurinn Thomas Möller skrifar um það í nýjum pistli sínum á hringbraut.is að vinnualkinn sé á útleið í samfélaginu og í staðinn sé kominn hinn agaði og vel skipulagði starfsmaður, altso \"níu til fimm er aftur komið í tísku”.
Það sé með öðrum orðum komið úr tísku að vinna mikið og lengi: \"Enda ekki vanþörf á hér á landi þar sem framleiðni og þjóðarframleiðsla á hverja klukkustund er um 20% minni en í helstu nágrannalöndum Íslands samkvæmt niðurstöðum skýrslu alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækisins McKinsey & Company um Ísland. Framleiðni í vinnunni er hér á mörgum sviðum minni en í sólríkum löndum Suður-Evrópu,\" skrifar Thomas.
Hann segir lélega tímastjórnun leiða til þessarar afleitu frammistöðu okkar íslendinga í framleiðni. Hér þurfi menn því að taka sér tak, skipta um gír: \"Stjórnendur verða sem sagt að fara að gorta sig af öðru en mikilli vinnu og pappírshaugum í kringum sig. Þeir sem eru að senda tölvupóst meðan þeir eru á hlaupabrettinu og gorta sig af því að byrja að vinna klukkan fjögur á morgnana, svara tölvupóstum þó að “out of office” meldingin segi að þeir séu í fríi og láta vita að það sé hægt að ná í þá hvenær sem er uppskera yfirleitt litla aðdáun í dag. Þetta eru einfaldlega úrelt vinnubrögð. Þessi stjórnandi er bara illa skipulagður, kann ekki að forgangsraða og veit ekki hvað það er mikilvægt að hlaða batteríin í frítímanum. Fyrr eða síðar brennur hann út og fær engar góðar og gagnlegar hugmyndir lengur.\"
Nútíminn sé svona: \"Fyrirtæki sem vilja vera í fremstu röð þurfa að forðast alls konar tímafrek átök sem sóa tíma fólks og bæta engu við virði vörunnar eða þjónustunnar sem verið er að veita. Fyrirtækin þurfa að vera “lean and mean”, lækka kostnað, forgangsraða verkefnum, halda skýrum fókus og gera það sem gera þarf á færri vinnustundum….. og gera þannig starfsfólkinu kleyft að eiga sinn frítíma í friði og komast heim á réttum tíma. Það eru því góðar fréttir fyrir fjölskyldurnar að níu til fimm er aftur komið í tísku,\" skrifar Thomas sem er á meðal fastra pistlahöfunda Hringbrautar.