Óskiljanlegur upplýsingafulltrúi

Steinunn Þorsteinsdóttir er upplýsingafulltrúi Landsnets, fyrirtækis sem mun hækka dreifingu á rafmagni til annarra en stóriðju um þrettán prósent. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

En hvers vegna til almennings en ekki stóriðju?

Í Fréttablaðinu stendur:

„Steinunn Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Landsnets, segir það ekki þannig að Landsnet geti breytt gjaldskránni að vild, heldur séu breytingar á gjaldskrá grundvallaðar á ákvörðunum Orkustofnunar. „Fyrirtækinu eru úthlutaðar ákveðnar tekjur og umhverfi til að afla þeirra. Tekjugrunni Landsnets er skipt í tvennt, stórnotendur og dreifiveitur. Ef leyfð arðsemi til stórnotenda við gerð áætlunar fyrir árið er til dæmis hærri en niðurstaða Orkustofnunar ákvarðar varðandi arðsemishlutfall, þá þarf að lækka gjaldskrána. Ef þessu er öfugt farið, þá þarf að hækka gjaldskrána. Það sama gildir um dreifiveitur,“ segir Steinunn.“

Skýringar Steinunnar eru í besta falli illskiljanlegar. Steinunn reynir betur:

Aftur er það Fréttablaðið:

„Engin tilkynning er um fyrirhugaðar breytingar á verðskrá Landsnets inni á heimasíðu fyrirtækisins. Steinunn segir það eiga sér eðlilegar skýringar og ekki um neinn feluleik að ræða. „Landsnet hefur sex vikna frest til að tilkynna Orkustofnun um fyrirhugaðar breytingar á gjaldskránni. Orkustofnun hefur síðan þrjár vikur til að skoða forsendur og rökstuðning og samþykkir eða hafnar breytingunni að þeim fresti liðnum. Okkur ber hins vegar skylda til að upplýsa okkar viðskiptavini, sem eru dreifiveiturnar, sem allra fyrst um fyrirhugaðar breytingar.““

Niðurstaðan; hækkandi verð til annarra en stóriðju.