Óskarsverðlaunahafi selur glæsihýsi við Sólvallagötu

Við Sólvallagötu í 101 stendur ævintýralegt einbýlishús sem var byggt árið 1925. Þeir sem eru kunnugir í 101 kannast eflaust við húsið en það fer ekki fram hjá neinum sem á leið hjá, enda minnir það helst á hús úr ævintýramynd. Þessi glæsilegi kastali er nú kominn á sölu og er fast­eigna­mat hússins 129.350.000 krónur.

Eig­andi húss­ins er Kjar­neplið ehf. sem er í eigu Sturlu Míós Þóris­son­ar og eiginkonu hans, tónlistarkonunni Marketu Irglova en þau keyptu húsið árið 2013 og hafa búið þar síðan. Húsið við Sólvallagötu er líklega eina hús landsins sem hefur skotið skjólshúsi yfir alvöru Óskarsverðlaunastyttu því Marketa hlaut slíka vegsemd árið 2008, aðeins 19 ára gömul.

Þá lék hún aðalhlutverkið í írsku myndinni Once ásamt Glen Hansard og sömdu þau einnig saman og fluttu tónlistina í myndinni. Svo fór að lag þeirra, „Falling Slowly“ sló í gegn og hlaut Óskarinn eftirsótta.

Marketa kom síðan fram á tónleikum á Nasa árið 2010, heillaðist af landi og þjóð og heimsótti síðan Ísland aftur til þess að taka upp tónlist. Þar kynntist hún upptökustjóranum Sturla Míó og þannig eignaðst Ísland Óskarsverðlaunahafa.

Marketa var í áhugaverðu viðtali við DV árið 2018 sem óhætt er að mæla með.

Marketa_Irglova.jpg

Marketa Irglova og Óskar