Kvikmyndin Spotlight var valin besta mynd ársins á Óskarsverðlaunahátíðinni sem afhent voru í Los Angeles í nótt, en valið kom nokkuð á ávart, enda er litið svo á vestanhafs að myndin hafi verið senuþjófur hátíðarinnar.
Myndin, sem einnig hlaut handritsverðlaunin fjallar á afhjúpandi hátt um kynferðislegt ofbeldi kaþólskra presta og biskupa í Boston gegn börnum og ungmennum og þykir í engu hlífa níðingunum og verkum þeirra. Myndin hefur fengið mikið lof að undanförnu.
Flestir áttu von á að Afturgöngur Leonardo Di Caprios yrði valin besta myndin á hátíðinni í ár, en svo fór að leikarinn sjálfur stóð uppi með stuyttuna fyrir bestan leik í karlahlutverki og var þetta í sjötta sinn sem þessi bandaríski leikari af þýskum og ítölskum ættum fer höndum um silfruðu styttuna. Brie Larsson úr kvikyndinni Room var valin besta leikkonan.
Jóhann Jóhannsson, sem tilnefndur var fyrir bestu tónlist, fór tómhentur heim.