Óskar Steinn ósáttur með ummæli Áslaugar: „Hvað í fokkanum ertu að segja"

Óskar Steinn Jónínuson, frambjóðandi Samfylkingarinnar í nýafstöðnum kosningum, er ekki sáttur með svör Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra við fyrirspurnum fréttastofu Rúv í gær.

Þar segir Áslaug að mikilvægt sé að bæta stöðuna á Landspítalanum en að það falli ekki í verkahring stjórnvalda. Hún segir þegar búið að bjóða alla þá fjármui sem þarf til að bregðast við stöðunni, fjölga hágæslurýmum og fleira. „Við getum ekki haldið niðri í okkur andanum og beðið eftir að þetta lagist,“ segir hún.

Óskar hefur greinilega rekið upp stór augu þegar hann sá þessi orð. Hann birtir svör Áslaugar á Twitter-síðu sinni og segir: „girl... hvað í fokkanum ertu að segja". Hann spyr svo hvort það sé ekki einhver sem vinnur á Landsspítalanum sem vilji svara þessu.