Óskar Steinn flúði mýflugnager við Úlfljótsvatn: „EKKI FARA Á ÚLFLJÓTSVATN!“

Hinn gamansami pólitíski tístari Óskar Steinn Ómarsson lenti í kröppum dansi við Úlfljótsvatn ásamt hundi sínum Grím en þeir þurftu að keppast við að halda mýflugunum frá vitum sínum þegar þeir flúðu staðinn.

Eins og sjá má í spaugilegu myndbandi sem Óskar birti á twitter síðu sinni var þykkt ger af mýflugum við vatnið og reyndu þær margar hverjar að fljúga í munn Óskars ef marka má hljóðin sem heyrast frá honum.