Í dag var greint frá því að lögreglan á Norðurlandi eystra hefði boðað blaðamennina Aðalstein Kjartansson, Þórð Snæ Júlíusson og Arnar Þór Ingólfsson í yfirheyrslu vegna umfjöllunar þeirra um „skæruliðadeild“ Samherja.
Málið hefur vakið mikla athygli og umræðu á samfélagsmiðlum og virðast margir ósáttir með ákvörðun lögreglunnar á Norðurlandi eystra að rannsaka mennina. Gunnar Smári Egilsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, hefur til að mynda gefið til kynna að um spillingu sé að ræða.
Eitt það áhugaverðasta í málinu er líklega ótrúleg staðreynd sem Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, fyrrverandi ritari Samfylkingarinnar, bendir á í færslu á Twitter. Hann segir að Kristín Edwald hafi verið formann nefndarinnar sem mat Páleyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, hæfasta til að gegna starfinu.
Óskar segir áhugavert að Kristín hafi verið formaður nefndarinnar vegna tengsla hennar, en hún er fyrrverandi kærasta Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og þá segir hann hana vera „innmúraðan flokksgæðing“ í Sjálfstæðisflokknum.
„Skemmtileg staðreynd: Fyrrverandi kærasta Þorsteins Más hjá Samherja var formaður nefndarinnar sem komst að þeirri niðurstöðu að Páley væri hæfust til að gegna starfi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Lítið land!“ sagði Óskar og bætti við:
„Áslaug Arna skipaði Kristínu Edwald sem formann nær allra hæfisnefnda sem mátu hæfi umsækjenda í stöður lögreglustjóra og sýslumanna í ráðherratíð sinni. Kristín er innmúraður flokksgæðingur og hefur þessa skemmtilegu tengingu við Þorstein Má.“
Þess má geta að ekki er hægt að finna upplýsingar um umrædda nefnd á vef stjórnarráðssins. Þó sést að Kristín var formaður nefndar sem skipaði í embætti Lögreglustjórans á Austurlandi og Sýslumannsins í Vestmannaeyjum.