Óskar Magnússon, fyrrverandi útgefandi Morgunblaðsins og núverandi rithöfundur og umsjónarmaður náttúruperlunnar Kersins í Grímsnesi, vandar starfsfólki dvalar- og hjúkrunarheimilisins Kirkjuhvols á Hvolsvelli ekki kveðjurnar, í stuttum en harðorðum pistli á Facebook. Tilefni skrifanna er frétt Morgunblaðsins á föstudaginn um örlög Tryggva Ingólfssonar. Tryggi hlaut alvarlegan mænuskaða er hann féll af hestbaki fyrir 12 árum, hann er lamaður að hálsi og þarf aðstoð við allar daglegar athafnir. Síðustu 11 árin hefur hann dvalist á Kirkjuhvoli. Samkvæmt frétt Morgunblaðsins þykir Tryggvi vera erfiður sjúklingur vegna mikillar fötlunar auk þess sem hann er sagður vera erfiður í skapi.
Nánar á dv.is