Ljósmyndarinn Óskar Hallgrímsson sem er búsettur í Kænugarði í Úkraínu var á viðtali í Bítinu hjá Heimi Karlssyni á Bylgjunni um stöðu mála í Úkraínu. Óskar var hins vegar ekki par sáttur við eina spurninguna sem hann fékk og greindi frá því á Facebook síðu sinni.
„Ég var í viðtali við morgunútvarp Bylgjunnar í morgun og ég fékk spurninguna "Ef það er eins og þú segir að tug þúsunda eiga eftir að farast í þessum komandi átökum, afhverju ekki bara að gefa eftir Donbas?",“ skrifar Óskar og merkir Heimi í færslunni.
„Ég skil hvaðan þetta kemur, en með fullri virðingu fyrir þér Heimir Karls þá er þetta frekar fáránlegur hugsunarháttur. Ég veit að þessi sama spurning er á vörum margra heima og þessvegna þess virði að spyrja þessarar spurningar ... En Úkraína á ekki að þurfa að annarsvegar gefa neitt eftir og hinsvegar hefur FULLAN rétt á að vernda þau landsvæði sem Úkraína á. Þetta er þeirra heimaland, með þeirra ríkisborgurum í miðri innrás af erlendri þjóð. Þjóð sem hefur sýnt það núna greinilega að þeir séu hrottar og villimenn. Hópnauðgarar og morðingjar.“
Að sögn Óskars hefur enginn þeirra staða og landsvæða sem Rússar hafa hertekið í Úkraínu sloppið við stríðsglæpi og því sennilegt að sama yrði uppi á teningnum í Donbas.
„Úkraína er ekki árásaraðilli hér og eiga ekki að þurfa að réttlæta að þau séu að verja sitt land. Það að segja að Zelensky geti bara lúffað undan þessu og bara gefið eftir landsvæðin til þess að bjarga manslífum er fáránlegt,“ skrifar Óskar.
Heimir Karlsson svaraði færslu Óskars og sagði að maður ætti ekki að vera hissa á spurningum sem þessum.
„Þetta er eins og þú segir Óskar, spurning sem margir eru að velta fyrir sér og því eðlilegt að spyrja hennar. Svo bendi ég bara á einu sinni enn, að þær spurningar sem við spyrjum þurfa sko alls ekki að endurspegla okkar eigin skoðanir. Svo get ég vel ímyndað mér að fyrir leiðtoga eins og Selensky i þessu tilfelli, að hann velti þessu fyrir sér með mannslífin í huga en svo skil ég vel að láta ekki kúga sig. En spurningin er alveg ,,valid" og þarf enginn að vera hissa á henni!“ skrifar Heimir.