Tafartími í umferðinni mun aukast gríðarlega nema landið sem nú er helgað Reykjavíkurflugvelli verði nýtt. Þetta segir: Dagur B. Eggertsson í umræðuþættinum Kvikunni á Hringbraut í kvöld.
Borgarstjóri verður gestur þáttarins og ræðir flugöryggi, skipulag, sögu og framtíð þess mikla þrætueplis sem staðsetning Reykjavíkurflugvallar hefur verið allt frá stríðslokum.
Í Reykjavík þarf að sögn borgarstjóra að bæta um 14.000 íbúuðum við fyrir 30.000 manns til ársins 2030. Ef það gerist aðeins í útjaðri byggðar muni tafartími í umferðinni aukast gríðarlega að sögn borgarstjóra. Þetta eru ein helstu rök þess að byggja þar sem Reykjavíkurflugvöllur er nú, segir borgarstjóri.
Njáll Trausti Friðbertsson, annar tveggja formanna Hjartans í Vatnsmýrinni, telur sig aftur á móti geta talað í góðu umboð þjóðarinnar með þeim 70.000 undirskriftum sem styðja að völlurinn verði áfram í Vatnsmýrinni. Njáll Trausti verður ásamt borgarstjóri gestur Kvikunnar í kvöld og meðal þess sem kemur fram hjá Njáli eru pólitísk spurningarmerki við framkvæmd íbúakosningar í Reykjavík þar sem naumur meirihluti kaus völlinn burt.
Mikið ber á milli í máli borgarstjóra og Njáls Trausta og ræðir annar mikla lífskjarabót sem fylgi breytingum en hinn \"óskapavegferð\".
Kvikan verður sýnd kl. 21.30 í kvöld á Hringbraut.