Óskaði eftir og fékk í gegn breytingu á reglugerð

Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sendi Kristjáni Þór Júlíussyni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra tölvupóst þar sem hann óskaði eftir breytingu á reglugerð um vinnslu og heilbrigðiseftirlits með hvalaafurðum. Þremur mánuðum síðar skrifaði Kristján Þór undir breytingu á reglugerðinni þar sem felld var niður sú kvöð að Hvalur hf. þyrfti að skera hval á yfirbyggðum skurðarfleti. Vísir.is greinir frá.

Í tölvupóstinum, sem var sendur þann 15. maí 2018, segir Kristján Loftsson að honum þyki nauðsynlegt að laga reglugerðina og að hann telji vonlaust að sækja um vinnsluleyfi fyrir komandi vertíð með reglugerðina óbreytta.

Þar vísar hann sérstaklega til 10. greinar reglugerðarinnar. Sú grein innihélt meðal annars þá kvöð að fyrirtækið ætti að skera hval á yfirbyggðum skurðarfleti. Í tölvupóstinum sendir Kristján Loftsson einnig tillögur sínar um breytingar á reglugerðinni og kallast þær margar hverjar á við þær breytingar sem Kristján Þór gerði svo á reglugerðinni þremur mánuðum síðar.

Fréttablaðið greindi frá því í ágúst á síðasta ári að reglum um hvalskurð hafi aldrei verið fylgt. Árið 2009 tók reglugerðin sem vísað er til gildi, þar sem kveðið er á um að hvalskurður skuli hefjast um leið og hvalur er kominn á land og að skurðarflöturinn skuli vera innan­dyra. Það ákvæði kom þó ekki til áhrifa fyrr en ári seinna, árið 2010.