Óskað eftir aðstoð björgunarsveita

Björgunarsveit á Ísafirði var kölluð út í tvígang í gær vegna slys á fólki. Á fjórða tímanum fór björgunarskipið Gísli Jóns og náði í slasaðan farþega um borð í skemmtiferðaskip sem lá fyrir akkerum rétt utan við Ísafjörð.

Sjúkraflutningamenn og læknir fóru með björgunarskipinu og skoðuðu farþegann í skemmtiferðaskipinu. Hann var svo á endanum fluttur í land til Ísafjarðar með björgunarskipinu og var komin um borð í sjúkrabíl upp úr fimm.

Stuttu seinna var óskað eftir aðstoð björgunarsveita í Vigur, þar voru tvær konur slasaðar. Farþegabátur á svæðinu flutti þær til móts við viðbragðsaðila sem mættu þeim í Súðavík og flutti björgunarsveitarfólk þær á sjúkrahúsið á Ísafirði.