Fötluðum einstaklingi sem sótti um NPA aðstoð hjá Reykjavíkurborg í janúar var synjað á þeim forsendum að reglugerð félags- og jafnréttismálaráðherra lægi ekki fyrir. Þær forsendur standast ekki skoðun þar sem lög um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir tóku gildi 1. október síðastliðinn og ráðherra gaf út reglugerð vegna laganna skömmu síðar. Vísir.is greinir frá.
NPA stendur fyrir Notendastýrða persónulega aðstoð og á heimasíðu Reykjavíkurborgar er tekið fram að frá og með 1. október 2018 sé hægt að sækja um þjónustuna hjá borginni. Á síðunni er vísað til laganna.
Í bréfi þjónustumiðstöðvar Árbæjar og Grafarholts til einstaklingsins segir: „Reglugerð um NPA liggur ekki fyrir og þar af leiðandi ekki regluverk Reykjavíkurborgar um NPA. Þegar reglugerð ráðherra liggur fyrir mun verða unnið eins hratt og unnt er að reglum borgarinnar um NPA.“
Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfsbjargar, segir þessa neitun hafa komið verulega á óvart. „Loksins þegar allt er klárt hvað varðar NPA, þá synjar Reykjavíkurborg viðkomandi umsækjanda á forsendum sem eru einfaldlega rangar og standast enga skoðun. Fatlað fólk er búið að bíða lengi eftir að allir lausir endar verði klárir og síðan þegar það sækir um eru svörin þessi. Þetta er vægast sagt mjög undarlegt allt saman,“ segir Bergur í samtali við Vísi.
„Þarna hafa átt sér stað leið mistök. Reglur borgarinnar eru ekki tilbúnar en reglugerðin var samþykkt í lok árs. Allar umsóknir verða afgreiddar eins fljótt og auðið er, eftir að þær liggja fyrir. Við vonumst til að það verði hægt að leggja þær fyrir fyrsta fund velferðarráðs í febrúar,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, í samtali við Vísi.