Í sjónvarpsþættinum Fólk með Sirrý í kvöld verður fjallað um kynferislegt ofbeldi á Íslandi en opinber umræða um nauðgangir og annað ofbeldi hefur farið mjög hátt í samfélaginu að undanförnu eftir átakið Beauty tips á Facebook.
Valur Grettisson blaðamaður hefur örugglega ekki átt von á því þegar hann skrifaði bókina Gott fólk að hún myndi tala svona beint inn í samfélagsumræðuna, hér og nú, eins og raun ber vitni. Bókin er byggð á sönnum atburðum og segir frá konu sem sakar mann um kynferðislegt ofbeldi og beitir fyrir sig ,,ábyrgðarferlinu" til að fá hann til að gangast við glæpnum og taka við skömminni. Í kjölfarið fara samfélagsmiðlar á fullt við að dæma manninn og taka afstöðu í málinu.
Í ,Fólki með Sirrý í kvöld ræða Valur og fleiri góðir gestir um bókina og um Beauty tips-byltinguna og það hvort hægt sé að rétta og dæma á samfélagsmiðlum. Ósk Gunnalugsdóttir, ein þeirra fjölmörgu kvenna sem segir sögu sína á Beauty tips segir í þættinum frá því hvers vegna hún skrifaði sögu sína, hvers vegna hún nafngreinir ekki þekkta manninn sem hún skrifar um og hvaða afleiðingar nauðgunin hefur haft á líf hennar. Hún vill að maðurinn sýni iðrun og átti sig á því hvað hann gerði.
Ósk Gunnlaugsdóttir tjáir sig um sögur Vals, Gott fólk sem hún segir góða bók og að það sé kostur við hana að hún sýni mennska hlið á gerandanum.
Þátturinn verður frumsýndur á Hringbraut kl. 20 í kvöld.