Ósáttur við kosningar í haust

Gunnar Bragi Sveinsson atvinnuvegaráðherra sagði í sunnudagsumræðunni á Hringbraut að hann hafi alltaf verið, og sé enn, mótfallinn að kjósa til Alþingis í haust. Það hefði átt að gera að kjörtímabilinu liðnu, það er næsta vor.

Gunnar Bragi sagðist aðspurður hafa sagt það á þingflokksfundi Framsóknar þegar samþykkt var að halda áfram stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokk, eftir afsögn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns flokksins.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist í sama þætti vera sömu skoðunar og Gunnar Bragi, að ekki sé að kjósa í haust. Hann sagðist ekki vera einn þeirrar skoðunar innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Brynjar sagði trúlega enga leið vera færa aðra en kjósa í haust, sama hversu óheppilegt það er.