Ósáttir við forsætisráðherra

Starfsmannafélög Stjórnarráðsins segja Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hafa vegið að heiðri félagsmanna með ummælum sínum í Kryddsíld Stöðvar 2 á gamlársdag þess efnis að lekar úr ráðuneytum um persónuupplýsingar fólks væru algengir á Íslandi. Frá þessu var greint í fréttum RÚV í hádeginu, en þar kom fram að félögin hafi fjallað fjallað um málið og þyki forsætisráðherra hafa með ummælum sínum vegið að heiðri félagsmanna. Það sé miður. Ragnheiður Bóasdóttir, formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins, segir í viðtali að ummælin séu alvarleg og mikilvægt sé að fá svör við þeim frá ráðherra.