Ósáttir við eindregni gunnars braga

„Það er bara þannig að við getum ekki látið prinsippafstöðu víkja fyrir stundarhagsmunum, þó að þeir séu verðmiklir,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra um eindregna afstöðu sína í viðskiptaþvinganamálinu gegn Rússum.

Augljóst má vera að ríkisstjórnin err ekki samstíga í málinu, en bæði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra hafa viljað fara hægar í yfirlýsingar af þessu tagi en Gunnar Bragi, enda miklir hagsmunir í húfi fyrir útflytjendur og þjóðarhag, svo mjög að nemur milljarðatugum. Fréttablaðið segir í dag að ráðherrarnir báðir séu beinlínis ósáttir við ístöðu utanríkisráðherrans.

 
Á föstudaginn samþykkti Evrópusambandið að framlengja viðskiptaþvinganir gagnvart Rússum um sex mánuði. Morgunblaðið hafði eftir Gunnari Braga á mánudaginn að það þýddi óbreytt ástand hvað varðar Ísland. Hann vill þar hvergi kvika.

Viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins gagnvart Rússlandi falla ekki úr gildi fyrr en í seinni hluta janúarmánaðar, þótt Evrópusambandið sé þegar búið að ákveða að framlengja þær.

Íslensk stjórnvöld hafa enga formlega ákvörðun tekið um að framlengja þátttöku sína í viðskiptaþvingununum og þurfa ekki að taka slíka ákvörðun fyrr en í janúar. Það er ekki síst þess vegna sem samráðherrar Gunnars Braga eru ósáttir við hversu afdráttarlausar yfirlýsingar hans hafa verið. Einnig vegna þess að þessa dagana er unnið að skýrslu um viðskiptasögu Íslendinga og Rússa og áhrif viðskiptabannsins á íslenskt efnahagslíf. Skýrslan er unnin fyrir forsætisráðuneytið.

Fréttablaðið greindi frá því á dögunum að verulega hefði dregið úr hrossaslátrun hjá kjötafurðastöð Kaupfélags Skagfirðinga. Ágúst Andrésson forstöðumaður sagði að markaðir í Rússlandi hefðu tekið við öllu kjöti af skrokkum og gott verð fengist. En síðustu mánuði hafi lítið sem ekkert komist inn á þá markaði.

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa líka farið mikinn í fjölmiðlum undanfarna daga vegna málsins. Í Fréttablaðinu í gær sagði Haukur Þór Hauksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, að Ísland væri einungis táknrænn þátttakandi í þvingunaraðgerðum gegn Rússum. Vegna þeirra hefði 30 milljarða króna markaður með uppsjávarfisk í Rússlandi lokast. Samdægurs birtist grein eftir Kolbein Árnason, framkvæmdastjóra sömu samtaka, í Morgunblaðinu þar sem hvatt var til breytinga á afstöðu Íslands.