„Fátæktarstefna ríkisstjórnarinnar er að sliga hluta þjóðarinnar. Sannast að segja er fatlað fólk og langveikt fólk ekki bara í afar slæmri stöðu nú, heldur í verstu stöðu í manna minnum. Framfærsla þess er að stærstum hluta komin langt undir öll mörk. Ef gólfið væri lágmarkslaun þá er bókstaflega verið að grafa þennan þjóðfélagshóp lifandi undir því. Örorkulífeyrisþegar sem eru rúm 5 prósent þjóðarinnar, eru mjög margir í dag með mikið lægri framfærslu en fólk á atvinnuleysisbótum og með talsvert lægri framfærslu en ellilífeyrisþegar, eins öfugsnúið og það er.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá Öryrkjabandalaginu og haft er eftir Þuríði Hörpu Sigurðardóttur, formanni ÖBÍ.
Félagar í aðildarfélögum ÖBÍ eru um 29 þúsund talsins.
Í tilkynningunni hér segir einnig: „Í umsögn Öryrkjabandalagsins eru gerðar fjölmargar tillögur um breytingar til batnaðar frá þeirri áætlun ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var á föstudaginn. Ekki er að sjá að þingmenn stjórnarmeirihlutans hafi lagt hlustir við eina einustu þeirra”.
Allra brýnast er í dag segir Þuríður Harpa að hækka framfærsluna verulega umfram prósentuhækkanir launa. Fatlað fólk og langveikt verði því dæmt í fátækt áfram. Hún bendir á að aðalfundur ÖBÍ í fyrra hafi sent frá sér ályktun um 390.000 kr. fyrir skatt, sem væri í raun lágmarksframfærsla miðað við verðlag á Íslandi í dag. „Við erum að tala um fólk sem þarf að borga lyf, læknisþjónustu, endurhæfingu o.s.frv, en þarf líka eins og annað fólk, að halda heimili og sjá fyrir börnum“, segir formaðurinn enn fremur.
Öryrkjabandalag Ísland hefur lagt til og barist hart fyrir því um langa hríð að krónu-á-móti-krónu skerðing verði afnumin.