Öryrkjum fjölgaði um 1500 í fyrra

17,500 Íslendingar eru nú skráðir með 75% örorkumat. Fjölgun þeirra sem metnit eru með svo mikla örorku hefur verið stöðug allan síðasta annan hálfa áratug, en mesta fjölgunin varð þó á síðasta ári samkvæmt tölum Tryggingastofnunar.

Um 8,500 manns voru skráðir með 75% örorku árið 1999, meira en helmingi færri en nú er, en fjölgunin var áberandi allan fyrsta áratug nýrrar aldar og svo aftur nú á allra síðustu árum sem endað hefur með stóra stökkinu sem kom nú á síðasta ári.

Skýringin liggur ekki fyrir, en Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir í Morgunblaðinu í dag að tölur um nýgengi örorku séu háar og valdi vonbrigðum.

Fram hefur komið að störfum mun fjölga um 2,300 á þessu ári og 2,600 á því næsta. Nýgengi örorku er því nærri helmingur af starfsfjölguninni, sem segir að fyrir hverja tvo sem fara nýir út á vinnumarkaðinn fer einn á örorku.