Öryrkjar fá tíu þúsund króna desemberuppbót greidda á þorláksmessu

Örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fá í dag desemberuppbót sína á Þorláksmessu. Um er að ræða tíu þúsund króna eingreiðslu sem Alþingi samþykkti í síðustu viku að skyldi greiða út í desember.

Lögin tóki gildi í dag eftir að þau birtust í Stjórnartíðindum og mun Tryggingastofnun ríkisins því greiða tíu þúsund krónurnar út til þeirra sem eiga rétt á desemberuppbót. Sú greiðsla ætti að berast öllum í dag, fyrir jólin.

Lögin sem um ræðir eru lög um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2020. Greiðslan kemur til viðbótar við þá desemberuppbót sem örorku- og endurhæfingarlífeyrisþegar fengu fyrir árið 2019 og telst ekki til tekna þeirra. Þar af leiðandi mun hún ekki skerða aðrar greiðslur til hópsins.