Öryggisfyrirtækið Securitas hefur hafið samstarf við tæknirisann alarm.com um nýjustu tækni í öryggiskerfum heimila, en hugbúnaðurinn að baki þess lagar sig að hversdagslegum lífsvenjum heimilisfólks í krafti nýjustu tegundar gervigreindar.
Þetta kemur fram í þættinum Heimilið á Hringbraut í kvöld þar sem Ómar Svavarsson, forstjóri Securitas fer yfir nýjustu tækni og vísindi í öryggismálum heimilanna hér á landi, en hann segir að unga fólkið taki þessari tækni opnum örmum á sama tíma og eldra heimilisfólki reynist létt að læra á appið i símanum sem stjórni öllu saman, hvar sem er og hvenær sem er.
Hann segir að ákveðins andvaraleysis gæti á þessum árstíma þegar birtan flæðir yffir landið og fólk fari í frí, en það haldi margt hver að innbrotsþjófarnir geri það líka og haldi sig til hlés þegar skammdegisins njóti ekki lengur við. Það sé fyrra; þjófarnir séu alltaf að - og þeirra vakt ljúki aldrei frekar en öryggisvarðanna, en tvennskonar innbrot séu algengust, annars vegar að hálfu fíkla sem séu að útvega sér fjármuni til neyslunnar og innbrot þeirra séu alla jafna fremur tilviljanakennd, en svo séu það glæpaflokkarnir, innlendir og erlendir sem gefi sér góðan tíma í skipulagningu og framkvæmd - og hafi ekki síst augastað á bílskurunum þar sem æ verðmætari hjól og annar rándýr útivistarbúnaður er alla jafna geymdur.
Heimilið byrjar klukkan 20:00 í kvöld.