Rekstur Sjúkrahússins á Akureyri fyrstu níu mánuði ársins er með halla upp á rúma 71 milljón eða um 1,6%. Þetta kemur fram á heimasíðu spítalans.
Almenn rekstrargjöld tímabilsins eru um 39 milljónir umfram áætlun.
„Þar vegur þyngst kostnaður við aðkeypta öryggisgæslu og lyf og ýmsar vörur til lækninga og rannsókna,“ segir Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri spítalans.
Athygli vekur að kostnaður við aðkeypta öryggisgæslu sé nefndur sem meginástæða hallarekstrarins en launakostnaður er um 21 milljónir umfram áætlun. Þar munar mestu um tímamælda yfirvinnu eins og áður.
Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga næsta árs er gert ráð fyrir 35 milljóna viðbótarframlagi til rekstrar. „Það liggur fyrir að krefjandi verkefni verður að stilla rekstur næsta árs af þannig að hann rúmist innan þess rekstrarramma sem við blasir m.a. í ljósi hallareksturs þessa árs,“ segir framkvæmdastjóri spítalans.