Aðeins um fjórðungur íslenskra vega telst sæmilega öruggur samkvæmt Öryggismati FÍB og EuroRAP sem gert hefur verið á 4.200 kílómetrum íslenska vegakerfisins í dreifbýli og þéttbýli.
Matið náði til ástands vega árin 2012 til 2017. Aðeins um 7 kílómetrar af öllu vegakerfinu fá hæsta öryggismat í úttektinni.
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB sagði í samtali við RÚV þetta hlutfall vera skammarlega lágt.
Hlutverk EuroRap/FÍB er að framkvæma gæðamat á vegum út frá slysasögu og mati á öryggi veganna samkvæmt samhæfðum aðferðum. EuroRap eru samtök 29 bifreiðaeigendafélaga í jafnmörgum löndum Evrópu, stofnuð árið 1999 að frumkvæði FIA alþjóðasamtaka bifreiðaeigendafélaga.