Öryggi fólks og byggða nú í hættu

Hafin er atburðarás sem ætla má að stefni öryggi fólks og byggðar í hættu.

Sú er skilgreining á óvissustigi sem Ríkislögreglustjóri hefur nú lýst yfir á landinu í samráði við alla lögreglustjóra landsins.

Skýringin er austan fárviðri fram undan en þegar er skollinn á stormur við Stórhöfða og mun vindur fara mjög vaxandi með ofankomu, regni, slyddu eða snjókomu og verður ekkert ferðaveður.

Óvissustiginu var lýst yfir fyrir nokkrum mínútum og kallar á aukinn mannskap lögreglu og fleiri aðila, sívöktun á hættuástandi.