Grímur Sæmundsen formaður Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála skrifuðu undir samstarfssamning við Landsbjörg sem felur í sér stóraukinn stuðning við verkefnið Safetravel. Samstarfsamingurinn er til þriggja ára og hljóðar upp á þrjátíu og fimm milljónir króna á ári.
Þessi upphæð kemur til viðbótar við framlag Landsbjargar í formi fjármuna og vinnu af hálfu sjálfboðaliða félagsins. Ráðuneyti ferðamála leggur fram tuttugu og fimm milljónir króna á ári en lagði til samanburðar fram sextán milljónir á liðnu ári. Samtök ferðaþjónustunnar auka sitt framlag úr sex milljónum króna árið 2016 í tíu milljónir á ári. Auk þess styður samteypan Icelandair Group verkefnið myndarlega.
Samstarfssamningurinn markar tímamót. Hann skapar forsendur til að auka verulega við Safetravel verkefnið sem Landsbjörg sinnir varðandi slysavarnir og öryggismál ferðamanna. Hefur Landsbjörg þó unnið mikið og gott starf á þessu sviði um árabil.
Nánar www.stjornarrad.is