Öruggt eða hættulegt fiskeldi

Orri Vigfússon formaður Verndarsjóðs villtra laxastofna skrifar um grein eftir Soffíu Karen Magnúsdóttur starfsmann Matvælastofnunar (MAST).  Orri rifjar upp að allir erlendir sérfræðingar sem hafa komið hingað á fiskledisráðstefnur hafa sagt að hugmyndafræði MAST um laxalús standist ekki.

Orri segir að Soffía Karen blandi saman öruggu fiskeldi og hættulegu fiskeldi. Opnar sjóvkvíar spilla umhverfinu skrifar Orri. Af þeim orsökum sé þróun nú seinni ár sú að færa fiskeldi á sjó í lokaðar kvíar eða þá upp á land.

Allt núverandi og fyrirhugað sjókvíaeldi á Íslandi er miðað við gamla og úrelta tækni skrifar Orri. Opið sjóvkíaeldi er víða bannað og stærstu fyrirtæki í laxeldi á sjó snúa baki við laxeldi í opnum sjókvíum.

Allt framtíðarlaxaeldi verður því líkast til í lokuðum kvíum. Orri segir að Sigrún Karen afneiti hættunni af laxalús við Íslandsstrendur. Hugmyndafræði MAST um laxalús er hafnaða af erlendum sérfræðingum skrifar Orri.

Laxalús magnast alls staðar upp í stórfelldu sjókvíaeldi. Afturkalla þarf og endurmeta öll starfs- og rekstraleyfi fiskledis síðastliðin tíu ár eða svo.

Grein Orra Vigfússonar er í Fréttablaðinu. 

rtá

www.visir.is