Lilja Alfreðsdóttir, utanríkisráðherra sagði á Hringbraut í gær að mikil vinna færi nú fram í ráðuneytinu við að skoða nokkrar sviðsmyndir vegna útgöngu Breta úr Evrópusambandinu. Í einni þeirra gætu EFTA ríkin til dæmis sameiginlega samið við Breta um viðskipti eða Ísland eitt og sér. Hún sagði að í samtali sínu við samráðherra í Evrópu, m.a. í Bretlandi sjálfu hafi komið fram að ekki verður hætt við Brexit né kosið aftur eins og rætt var um stuttu eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Þá sé Bretland eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands og íslenska stjórnsýslan verður að vera í stakk búin að taka á þeim aðstæðum sem upp koma vegna útgöngunnar. Tvö ár eru í að af henni verði.
Lilja sagði í gær að hún hafi lagt til að ráðherranefnd verði skipuð um Brexit. Það gekk eftir í dag á ríkisstjórnarfundi en sex ráðherrar ríkisstjórnarinnar verða í nefndinni sem mun hafa yfirumsjón með vinnu hérlendra stjórnvalda vegna boðaðrar útgöngu Breta. Veita á Alþingi jafnóðum upplýsingar um gang mála.
Sérstaklega náin samvinna verður við Norðmenn og hin EFTA ríkin.