Ört vaxandi sveitarfélag og mikil gróska

Vegna tæknilegra mistaka sem áttu sér stað í gærkvöldi verður Atvinnulífið endursýnt í kvöld kl. 22.00 en að þessu sinni heimsækja þeir Sigurður K. Kolbeinsson þáttastjórnandi og Friðþjófur Helgason kvikmyndatökumaður sveitarfélagið Mosfellsbæ.  Rætt verður við bæjarstjórann Harald Sverrisson og einnig við þær Salome Þorkelsdóttur fyrrv. forseta Alþingis og heiðursborgara og Gretu Salóme bæjarlistamann.  Farið verður víða í þættinum og m.a. komið við á Gljúfrasteini og rætt við safnstjórann í Húsi Skáldsins.  Þá verður komið inn á nýbyggingar í Helgafellslandi, skóla- og fræðslumál, útivistarmál og menningarmál.