Óboðlegur biðtími eftir örorku

Víðir Rósberg Egilsson spyr í pistli sem hann hefur skrifað á facebook hvort það sé eðlilegt að hann hafi þurft að bíða misserum saman eftir örorkumati.

Hann vitnar til þess að í fréttum hafi nýlega komið fram að of langur afgreiðslutími hefði verið vegna erinda hjá Útlendingastofnunar. Spyrja megi hvort sami vandi sé á fleiri stöðu. Hann hafi sjálfur sótt um örorkumat í maí 2015 hjá TR.

\"Þegar 3gja mán. afgreiðslufrestur TR var að renna út fór ég að leita eftir svörum sem voru engin að mínu mati. Stofnunin gaf mér þau svör að það væru sumarleyfi í gangi og mikið álag. Eru ekki sumarleyfi á hverju sumri? Í september kemur niðurstaða ég hef þá 15 daga til að biðja um rökstuðning og 3 mán. til að kæra niðurstöðuna. Ég óskaði ekki eftir rökstuðning en ákvað í byrjun des. að kæra niðurstöðuna til úrskurðarnefndar almannatrygginga sem einnig gefur sér 3 mán. til að úrskurða í málinu. Um áramót er úrskurðarnefnd almannatrygginga ásamt fleiri úrskurðarnefndum sameinuð í eina nefnd sem heitir úrskurðarnefnd velferðarmála. Ég fer að leyta svara þegar 3 mán. eru liðnir. Þar er mér sagt að það hafi verið sent bréf í nóv. og útskýrt að það ætti að sameina þessar nefndir. Ég kærði hins vegar í des. og fékk því ekkert bréf. Eftir áramótin hafi svo verið farið að ráða í nýju nefndina og skipuleggja störfin en engin mál tekin fyrir á meðan. Af hverju sú vinna hófst ekki í nóv. er mér hulin ráðgáta þar sem það virðist hafa legið fyrir að þessar sameiningar ættu að eiga sér stað um áramótin. Ég hafði svo aftur samband þegar rúmir 4 mán. voru liðnir frá kæru. Svörin þá voru að það væri bréf á leiðinni til mín með útskýringum að tafir yrðu á fyrirtöku kærunnar vegna sameininga nefndanna í eina. Mér var einnig sagt nr. hvað mitt mál væri, sirka hvaða nr. væri verið að vinna í þá stundina og nokkurn veginn hvað væru tekin mörg mál fyrir á viku.
Nú er alveg að detta í 1 ár frá því að þetta ferli hófst en ekki enn komin endanleg niðurstaða,\" skrifar Víðir.

\"Hvað ætli hefði orðið ef það hefði dregist um nokkra daga hjá mér að kæra úrskurð TR og ég farið fram yfir 3 mán. kærufrestinn. Hefði því verið vísað frá? Ég veit það ekki en mér finnst það líklegt. Finnst ykkur eðlilegt að þetta taki svona langan tíma því að mitt mál er örugglega ekkert einsdæmi?\" spyr hann.

\"Ég sótti á sama tíma um örorku til Lífeyrirssjóðs. Þar var búið að afgreiða mína umsókn endanlega seint í júní eða byrjun júlí. Nú þegar hefur mér borist bréf frá Lífeyrirssjóðnum að ég þurfi að fara senda inn endurmat ef ég ætli að endurnýja örorkuna sem rennur út í júní. Það er spurning hvort Lífeyrirssjóðurinn verði búinn að afgreiða mig tvisvar áður en almenna kerfið klárar mitt mál?\"

Víðir segist greina frá biðinni og ferlinu til að stjórnmálamenn, embættismenn eða aðrir sem málið varði lesi þau. Biðtíminn sé óboðlegur.