Dagskrárfólk Hringbrautar er í hátíðarskapi í dag vegna landsleiks Íslands og Englands í Nice í Frakklandi og vill síður en svo skyggja á fótboltaveisluna. Því verður dagskrárskilti með herhvöt til strákanna okkar á milli klukkan 19 og 21 í kvöld - og bíður dagskrá kvöldsins sama dags í næstu viku.
Þar á meðal er seinni hluti viðtals Sigmundar Ernis við Önnu Margréti Grétarsdóttur, elsta Íslendinginn sem gengist hefur undir kynleiðréttu, en fyrri hluti viðtalsins við hana í síðustu viku vakti mikla athygli. Í þættinum, sem ber nafnið Örlögin, segir Anna Margrét sögu sína af óvenju miklu hispursleysi og einlægni svo eftir hefur verið tekið.
Örlögin verða því á sínum stað að viku liðinni með seinni hlutann af örlagasögu Önnu Margrétar.