Gestur Sigmundar Ernis í nýju þáttaröðinni Örlögin á Hringbraut í kvöld hefur frá meiri lífsreynslu að segja en flestir ef ekki nær allir landsmenn hafa lifað og reynt um sína daga.
Það er Guðbjörg Inga Guðjónsdóttir sem sest í gula stólinn uppi í risinu í Iðnó að þessu sinni, en hún er ef til vill þekktari af gælunafni sínu Guggu og kærasta sínum Jóa, en saman urðu Jói og Gugga landsþekkt þegar fréttaskýringaþátturinn Kompás á Stöð 2 sagði sögu þeirra úr ræsinu fyrir liðlega áratug en þá voru þau bæði langt leiddir eiturlyfjasjúklingar sem sprautuðu sig með morfíni upp á sérhvern dag - og voru raunar svo illa á sig komin að margir sem á horfðu áttu allt eins von á að þau hrykkju upp af hvar og hvenær sem var.
Í einlægu og hispurslausu samtali sínu við Sigmund Erni segir Gugga sögu sína allt frá því drykkfelldir foreldrar hennar komu henni í hendur ömmu hennar sem ól hana upp, þegar hún byrjaði í brennivíni um fermingu og leiddist svo út í hassneyslu og síðar sterkari efni um 17 ára aldur. Skömmu síðar missti hún bæði barn sem hún bar undir belti sem rekja má til ofneyslu og varð vitni að því þegar kærasti hennar var skotinn til bana fyrir framan hana.
Hún hætti neyslu um 25 ára aldur og hélt sér þurri allt þar til hún varð 32 ára, en þá bankaði fíknin upp á sem aldrei fyrr og hún sökk til botns á nokkrum vikum, hafði þá kynnst karli sínum Jóa, sem hún hafði séð af og til á meðan hún vann á kaffistofu Samhjálpar á edrúárunum - og saman urðu þau sennilega frægustu fíklar landsins um skeið, svo illa farin undir restina að Jói varð iðulega að blása lífi í Guggu þegar hún komst í andnauð út af of stórum skömmtum, en þá var hún raunar farin að taka vitandi vits, orðin dauðþreytt á lífinu.
Gugga hefur ekki smakkað það í fimm ár og Jói ekki heldur. Þau eru lifandi sönnun þess að allt er hægt þegar viljinn er fyrir hendi, en það tekur á að hlusta og horfa á Guggu segja sögu sína og liggur við að viðkvæmar sálir eigi að leiða þáttinn hjá sér.
Örlögin eru frumsýnd klukkan 20:30 í kvöld.