Kristján var spurður út í stöðu Illuga í Morgunútvarpinu á Rás 2 í gær: \"Staða hans er einfaldlega þannig að hann hefur svarað ágætlega fyrir sín mál á síðustu dögum. Hann hefði vissulega mátt svara því fyrr. Það er bara sá hinn sári veruleiki sem við stöndum oft frammi fyrir stjórnmálamenn að við grípum kannski seint til svara. Við erum stundum seinþreyttir til vandræða en þetta er einfaldlega þannig vaxið mál að hann hefði betur komið fram með þessi svör fyrr,“ segir Kristján.
Í frétt RÚV sem unnin er upp úr viðtalinu segir að Illugi hafir verið gagnrýndur fyrir að svara ekki spurningum fjölmiðla, einkum spurningum Stundarinnar, mánuðum saman um tengsl sín við fyrirtækið. Eins og fram hafi komið hafi Illugi verið á launaskrá hjá fyrirtækinu á meðan hann var utan þings og farið síðar sem ráðherra til Kína með fulltrúum fyrirtækisins. Ennfremur seldi hann stjórnarformanni Orku Energy íbúð sína vegna fjárhagserfiðleika. Hann leigi nú sömu íbúð.
Kristján Þór kveðst ekki hafa forsendur til að meta hvort svör Illuga um málið hafi verið fullnægjandi: \"Illugi er bara að leggja sín spil á borðið eins og hann hefur gert og gert það með ágætum hætti.“ Spurður hvort málið hafi skaðað Sjálfstæðisflokkinn eða ríkisstjórnina svaraði Kristján: \"Þetta hefur veikt Illuga. Ég hef enga trú á öðru en að hann vinni sig í gegnum það. “
Kristján Þór telur málið ekki þannig vaxið að það geti leitt til afsagnar menntamálaráðherra.