„fólk sem hatar raf­magn“

Það er á­leitin spurning hversu mikið vit er í því að leggja vinnu í vandaða um­fjöllun og lýð­ræðis­lega af­greiðslu mikil­vægra og erfiðra mála ef fram­haldið er síðan á valdi ein­stak­linga sem telja sig hafa svo góðan mál­stað að verja að þeir geti tekið sér vald til þess að ráðast með of­beldi gegn upp­byggingu mann­virkja og at­vinnu­starf­semi sem byggir á lýð­ræðis­legri og mál­efna­legri niður­stöðu bærra stofnana og yfir­valda og er til komin í sam­ræmi við gildandi lög í landinu. Reyndar er það þannig að of­beldið í þessari mynd er jafn úr­elt og bogi og örvar sem stríðsól.“ 

Þetta segir Guðni A. Jóhannes­son orku­mála­stjóri sem gerir kvik­myndina Kona fer í stríð að um­tals­efni í jóla­erindi sínu á vef stofnunarinnar í dag, sem ber yfir­skriftina „Fólk sem hatar raf­magn.“

Nánar á

https://www.frettabladid.is/frettir/orkumalastjori-um-kona-fer-i-stri-folk-sem-hatar-rafmagn