Áætlað er að þeir sextán virkjanakostir sem eru í nýtingarflokki rammaáætlunar geti gefið af sér alls 1.023 megawött af orku, jafngildi næstum tveggja Kárahnjúkavirkjana. Það ætti að duga fyrir að minnsta kosti fjögur ný stóriðjuver standi hugur ráðamanna til frekari uppbyggingar á því sviði.
Mjög hefur borið á umræðu undanfarna daga í þá veru að ekki séu möguleikar á að útvega næga orku í fyrirhugaða stóriðju á suðvesturhorni landsins, sérstaklega fyrir uppbyggingu kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík og sólarkísilverksmiðju Silicor Materials á Grundartanga. Á því svæði eru hins vegar átta virkjanakostir í jarðvarma sem eiga að gefa af sér 460 megawött af orku. Kísilmálmverksmiðjunnar þurfa einungis brot af þeirri orku. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu.
Í blaðinu eru rifjuð upp nýleg ummæli Jóns Gunnarssonar, formanns atvinnuveganefndar Alþingis, um að töf á færslu þriggja virkjanakosta úr bið- í nýtingarflokk rammaáætlunar muni gera það að verkum að Landsvirkjun geti ekki útvegað næga orku fyrir uppbyggingu kísilmálmverksmiðju Thorsil í Helguvík og sólarkísilverksmiðju Silicor Materials á Grundartanga. Hvammsvirkjun, sem fór í nýtingarflokk, fullnægi aðeins orkuþörf annars verkefnisins. Jón hefur talið það vafasamt að hægt sé að nýta þá kosti sem þegar eru í nýtingarflokki í umrædd verkefni. Engir virkjanakostir séu raunhæfir á þessum áratug nema þeir sem séu í neðrihluta Þjórsár og Þeistareykir.
Björgvin Skafti Bjarnason, oddviti sveitarstjórnar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi segir í Morgunblaðinu í dag að daginn eftir að samþykkt var að færa Hvammsvirkjun í nýtingarflokk hafi starfsmenn Landsvirkjunar haft samband við sveitafélagið og viljað viðræður. Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, segir fulltrúa Landsvirkjunar einnig hafa haft samband, en framkvæmdin mun fara fram innan beggja sveitarfélaganna.