Jónas Kristjánsson ritstjóri gefur lítið fyrir málflutning Ólafs Ragnars Grímssonar eins og hann birtist í viðtali við DV í dag.
Í nýjum pistli sínum skrifar ritstjórinn gamalreyndi að Ólafur hafi sagt í viðtalinu að forseti eigi ekki að haggast í öldurótinu.
Hefur þá ritstjórinn upp hlaupið sitt:
„Samkvæmt því telur hann sig óhæfan til að vera forseti. Hefur nefnilega í þrígang ekki bara haggast, heldur umturnast 180° í öldurótinu,“ skrifar Jónas.
Orð ritstjórans hafa vakið nokkra eftirtekt á samfélagsmiðlum í dag. Dæmin sem Jónas nefnir eru þegar Ólafur Ragnar hafi strikað yfir vinstra fylgi sitt og gerst hægri forseti. Heldur svo áfram:
„Síðan þegar hann strikaði yfir ofsafengið dálæti á útrásarvíkingum í hruninu og gerðist andstæðingur útrásarinnar eftir hrun. Í þriðja sinn þegar hann strikaði yfir ofsafengið dálæti sitt á arabískum furstum og öðrum þriðja heims illmennum og gerðist gamaldags vestrænn,“ skrifar Jónas með augljósri vanþóknun á týpunni Ólafi Ragnari Grímssyni.
„Svona flautaþyrill dugir ekki.“ Endar ritstjórinn pistil sinn á.