Órg fari fram – enn eina ferðina

 Prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir að orð forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, um Parísarhryðjuverkin á Rúv í gærmorgun hafi leitt til aukinnar sundrungar meðal íslensku þjóðarinnar fremur en að sameina hana. Ógn sem kennd sé við öfgafulla múslima er mesta ógn samtímans samkvæmt mati forseta Íslands.

Þetta kom fram í hádegisfréttum hjá Bylgjunni. Þar var rætt við Baldur Þórhallsson sérfræðing sem áður hafi skrifað um ummæli forsetans á fésbók. Baldur var í hádegisfréttum Bylgjunnar spurður út í þau orð forsetans að gjalda verði varhug við að styrkja félög múslima hér á landi og fleira og segir Baldur að afdráttarlaus orð forseta hafi frekar leitt til sundrungar í samfélaginu fremur en hitt. Því hljótum við á þessari stundu að horfa til hlutverks forsetaembættis þar sem skilningur margra sé að embættið eigi að vera sameiningartákn þjóðar. Margir séu ekki sáttir við ummælin.

Spurður hvort ÓRG sé að markera sig fyrir enn eitt framboðið með ummælum sem hann hefði ekki þurft að láta falla telur Baldur að ummælin kunni að vera til marks um það, enda þekkt meðal stjórnmálamanna að orða hlutina skýrt til að ná til kjósenda.

Unnin voru skemmdarverk á menningarsetri múslima í Reykjavík í gær, m.a. með kroti. Þá hefur Stöð 2 sagt frá leigjanda á höfuðborgarsvæðinu sem ekki fékk íbúð þar sem leigjandinn játar múslimska trú.

Nokkrir þingmenn hafa fordæmt ummæli forseta Íslands, þar á meðal Svandís Svavarsdóttir hjá VG.