Orðspor bænda, heilbrigði og hatur

Þjóðbraut kemur víða við í dag. Við byrjum í hádeginu í beinni útsendingu í útvarpi Hringbrautar með viðtali við Sindra Sigurgeirsson, formann Bændasamtakanna. Hvers vegna þarf ekki að skýra.

Í laugardagsþætti Þjóðbrautar var merkilegt viðtal við Maríu Magnúsdóttur, hjúkrunarfræðing í Keflavík, sem hefur skaðast og veikst vegna eitrunar frá United Silicon. María verður í viðtali í hádegisþættinum.

Í sjónvarpinu í kvöld verður viðtal við Pál Mattíasson, forstjóra Landspítalans, spítala sem býr við að fá minna skammtað til sín en þjóðarsjúkrahús annarra þjóða. Það er margt að og margt af því er knýjandi.

Sema Erla Serdar berst gegn hatursumræðu og þarf að þola margt sem um hana er sagt og henni er jafnvel hótað. Hún mætir í myndver og ræðir þau mál.

Margir viðmælendur bíða því að komast að í Þjóðbraut.

Útvarpsþátturinn hefst klukkan 12:30 og sjónvarpsþátturinn klukkan 21:00.

Sigurjón M. Egilsson hefur umsjón með báðum þáttunum.