Við verðum að breyta umræðuhefðinni, er niðurstaða greinar sem einn stofnenda Pírata, Smári McCarthy hefur skrifað í Stundina, en greinin birtist í kjölfar frétta um vandræðagang á spjallsvæði Pírata, þar sem of mikið mun hafa þótt vera af því sem Smári kallar „fávitalegar skoðanir.“
Á vef Herðubreiðar er bent á að Smári megi ef til vill vanda sig sjálfur í þessum efnum sem hann boði. Í grein sinni, þar sem hvatt er til kurteisi og yfirvegaðrar umræðu, kalli Smári valdhafa „siðlaus, mannvond fífl“ og telji raunar einnig fjölda fólks á Alþingi „tala viðstöðulaust með rassgatinu.“
Herðubreið segir: Um fjölmiðla hefur hann það meðal annars að segja, að „svokallaðir blaðamenn skófla upp hverskyns bulli“ og að flestir fjölmiðlar virðist „sáttir við að láta frá sér hvaða rætnu drullu sem er.“
Smári varar við því að óvönduð umræða og fjölmiðlun verði til þess að sá tími komi þegar enginn hreinlega muni lengur hvernig á að vera „kurteis og gagnrýninn.“