Birgitta Jónsdóttir þingmaður Pírata segir að Ísland sé orðið að algjöru athlægi umheimsins vegna spillingar og vandræðagangs stjórnvalda. Hún spurði Bjarna Benediktsson á Alþingi í morgun hvort ekki væri snefil af auðmýkt að finna meðal oddamanna ríkisstjórnarinnar. Nákvæmlega sama andrúmsloft væri að skapast líkt og eftir hrun. Hún vildi spyrja Sigurð Inga Jóhannsson, verðandi forsætisráðherra, hvort hann teldi nóg hafa verið gert í því að endurheimta traust gagnvart þjóðinni ekki síst í ljósi mælinga sem sýndu að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra væri rúinn trausti og vísaði hún þar til könnunar 365.
Sigurður Ingi svaraði að mun stærri þjóðarhagsmunir væru fyrir hendi nú að leysa en að ganga til kosninga. Hann benti á glæsilegan árangur ríkisstjórnarinnar síðari ár en svaraði engu um auðmýktina. Í síðara svari sínu sagðist verðandi forsætisráðherra að langstærsta málið væri afnám hafta sem væri frábær vinna og einkum eftir að stjórnin setti mjög öflugt fólk til verka. Sá árangur verði mældur sem skólabókardæmi um árangur og eðlilegt sé að stjórnin fái að klára það verkefni. Annað myndi bíða upp á of mikla óvissu.
\"Þið eru óvissan,\" kallaði Birgitta þá úr sæti sínu.