Orðbragð fanga dannaðra en pólitíkusa

Margrét Frímannsdóttir sem stjórnað hefur fangelsinu á Litla Hrauni í á áttunda ár var gestur Sigmundar Ernis í Mannamáli á Hringbraut í gærkvöld. Hún kvaðst þar vera guðslifandi fegin að vera laus undan pólitíkinni, en hún sat á þingi í 20 ár frá 1987, var formaður Alþýðubandalagsins um árabil og tók þátt í stofnun Samfylkingarinnar. Hún sagði í þættinum pólitíkina vera mannskemmandi og ekki hafi hún farið batnandi eftir að hún hætti á þingi; orðbragð fanganna sinna austur á Litla Hrauni, sem kalli nú ekki allt ömmu sína, væri mun dannaðra en það sem stjórnmálamenn létu út úr sér um pólitíska andstæðinga sinna. Á sínum bæ kunni menn þó að skammast sín sem sé eitthvað sem pólitíkina skorti alveg nú til dags.


Margrét fór víða í samtali sínu í gærkvöld; talaði um uppeldið innan um fangana á Stokkseyri í gamla daga, oddvitaárin eystra, formannsslaginn við Steingrím J. Sigfússon sem kannski varð til þess að Vinstrihreyfingin grænt framboð varð til og ræddi líka hispurslaust um brjóstakrabbann sem hún barðist við fyrir áratug og hafði þar fullan sigur.


Þátturinn var frumsýndur klukkan 21.00 í gær og er hægt að  nálgast eins og allt annað dagskrárefni Hringbrautar undir sjónvarpsflipanum hér á hringbraut.is, svo og klippur úr þættinum hér neðar á forsíðunni.


Horfðu á klippur úr þættinum hér: