Orð vg þingmanna verði rifjuð upp

Nýr stjórnarsáttamáli var kynntur í morgun og ný ríkisstjórn. Miklar breytingar eru á ráðherraliðinu eða á rúmlega helming þess. Fimm sitja áfram og sex nýjir taka við.

Í Þjóðbraut til Lindu Blöndal mæta Kolbeinn Óttarsson Proppé, þingmaður VG, Logi Einarsson, formaður Samfylkingar og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður  - þau fóru hraðferð yfir nýútkomin sáttmála sem margir eiga enn eftir að kynna sér betur og einnig yfir skipan ráðherra sem var rétt að koma í ljós. Meðal þess sem kom fram í máli Loga var að hann teldi áhugavert að heyra rifjuð upp orð þingmanna VG um Landsréttarmál Sigríðar Andersen. Kolbeinn bað um að stefnuskráin væri skoðuð af sanngirni en Þórhildur Sunna gagnrýndi harðlega endurskipun dómsmálaráðherrans. 

 

 

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnaráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra , Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Steingrímur J. Sigfússon þingmaður VG verður forseti Alþingis. Guðmundur Ingi Guðbrandsson er sóttur af hálfu VG utan þings en hann er framkvæmdastjóri Landverndar.

Jón Gunnarsson Sjálfstæðisflokki fer úr samgönguráðuneytinug þar sem Sigurður Ingi tekur við, Bjarni flytur sig í fjármálaráðuneytið og Kristján Þór úr menntamálum yfir í landbúnaðar og sjávarútvegsmál. Ásmundur Einar kemur nýr inn i stjórnaráðið sem og Lilja Alfreðsdóttir.

Fimm ráðherrar frá því í síðust ríkisstjórn halda því áfram í stjórn og sex nýjir taka við.