Orð dagsins á Halldór Guðmundsson fyrrverandi bókmenntapáfi sem um árabil var húsvörður í Hörpu eða öllu heldur forstjóri. Halldór á orð dagsins en á Facebook tjáir hann sig um verkfall Eflingar. Halldór segir:
„Á bágt með að trúa því að samfélagið fari á hliðina við það að láglaunakonur fái 400 þúsund á mánuði. Í minni tíð hefur þjóðarskútunni einu sinni verið siglt í strand, og það af mönnum með tuttuguföld þessi laun.“