Ör framþróun í öryggiskerfum heimila

Þróunin í öryggiskerfum heimila er afskaplega ör og nú er hægt með tiltölulega einföldu móti að fylgjast með þjófum, reyk og mögulegu vatnstjóni heima hjá sér með einföldu appi í símanum - og sömuleiðis að taka úr lás heima hjá sér, fyrir barni sínu eða bara iðnaðarmanni sem þarf að koma þar við, án þess að vera á staðnum.

Þetta kemur fram í máli Auðar Lilju Davíðsdóttur, framkvæmdastjóra sölusviðs Öryggismiðstöðvarinnar sem er gestur Heimilisins í kvöld og ræðir þar helstu atriði sem þarf að hafa í huga vegna innbrotaöldunnar sem ríður nú yfir höfuðborgarsvæðið.

Hún nefnir margar leiðir til að auka öryggi íbúða, án þess að leggja út í kostnað, en öryggiskerfi séu líka ódýr, kosti innan við sjöþúsund krónur á mánuði og sinni ofangreindum þáttum, heimilisfólki til mikils hagræðis og öryggis.

Heimilið byrjar klukkan 20:00 í kvöld.