Opnað á gríðarháar sektir

Samtök atvinnulífsins hafa sent allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um persónuvernd ásamt Samorku, Samtökum ferðaþjónustunnar, Samtökum fjármálafyrirtækja, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum iðnaðarins, Samtökum verslunar og þjónustu og Viðskiptaráði Íslands.

Með frumvarpinu er nýtt regluverk Evrópusambandsins (GDPR) innleitt í íslenskan rétt.

Ísland hefur hins vegar svigrúm til að ákveða með hversu íþyngjandi hætti regluverkið er innleitt. Í tilkynningu SA segir: „Því miður er í nokkrum tilvikum lagt til að farin verði leið sem leggur ríkari skyldur á fyrirtæki á Íslandi en í öðrum löndum Evrópu. Það er því miður of algengt þegar reglur Evrópusambandsins eru innleiddar á Íslandi. Slíkt dregur úr samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja. Samtökin leggja því til nokkrar breytingar, en leggja um leið áherslu á að frumvarpið verði að lögum nú í vor“.

Bent er á að í einni grein frumvarpsins sé að finna heimildir fyrir gríðarlega háum dagsektum og vilja samtökin að sú grein verði felld niður. Í frumvarpinu er lagt til að Persónuvernd geti lagt á dagsektir allt að 200 þúsund krónur á dag til viðbótar gríðarlega háum stjórnvaldssektum auk þess sem stórfelld brot á lögunum geta varðað fangelsisrefsingu allt að 3 árum. Samtökin telja í ljósi nýrra valdheimilda séu engin rök fyrir því að hafa jafnframt ákvæði um dagsektir í frumvarpinu, hvað þá leggja til tvöföldun þeirra. Enga slíka heimild til dagsekta er að finna í nýjum persónuverndarlögum í Danmörku og Noregi.

Nánar um þetta á vefsíðu Samtaka atvinnulífsins.